Fara í efni

Varið ykkur á vasaþjófum!

Ferðamenn við Gullfoss
Ferðamenn við Gullfoss

Ferðamálastofa hefur fengið ábendingar um að hópar vasaþjófa séu að herja á helstu áfangastaði landsins. Fréttir hafa borist af ferðamönnum sem hafa tapað mjög háum fjármunum vegna þessa á undanförnum vikum. Viljum við því hvetja ferðaþjónustuaðila til þess að brýna fyrir sínum viðskiptavinum að varast vasaþjófa og ganga þannig frá verðmætum að ekki sé auðvelt að nálgast þau.

Hér eru nokkur góð ráð varðandi það, hvernig varast má vasaþjófnaði:

  • Standið alltaf vörð um verðmæti ykkar.
  • Verið meðvituð um umhverfi ykkar á öllum tímum, sérstaklega ef einhver nálgast ykkur og reynir að ná athygli ykkar.
  • Lokið og krækið (læsið) öllum töskum og veskjum til að gera það erfiðara fyrir vasaþjófa að komast í þær.
  • Staðsetjið handtöskur fyrir framan ykkur þegar að þið eruð á stað þar sem að margir koma saman.
  • Geymið peninga á öruggum stað (jafnvel innanklæða) svo að ekki sé hægt að læðast í þá. Ekki geyma allan peninginn á einum og sama staðnum.
  • Aldrei geyma verðmæti í ytri vösum fatnaðar.
  • Eigið afrit af helstu persónugögnum.
  • Tilkynnið til lögreglu eða landvarða ef þið takið eftir tilraunum til vasaþjófnaðar.
  • Tilkynnið allan stuld til lögreglu þó svo að það taki tíma frá ferðalaginu.

Ef þið eruð með spurningar eða frekari upplýsingar látið okkur endilega vita í oryggi@ferdamalastofa.is